Kerfin í Háskóla Íslandssem notuð eru með Turnitin

Kerfin sem skólinn notar með Feedback Studio


Háskóli Íslands notar námsumsjónarkerfið Canvas frá og með haustinu 2020. Aðgangur að því er í gegnum námskeiðin í Uglu. Námskeið er valið og það opnast í Canvas. Frá og með haustinu 2020 er gert ráð fyrir að skilaverkefnum í Feedback Studio sé skilað í gegnum  Canvas. Hægt er að velja á milli tveggja viðbóta (e. plugins) LTI og Framework.

Skólinn er auk þess með námsumsjónarkerfið Moodle en hættir að nota það í sumarlok 2020. Þeir sem nota Moodle geta skilað í gegnum viðbæturnar Direct 2 eða Plagiarism Plugin.

Eftir að kennarar hafa stofnað fyrsta Turnitin Feedback Studio verkefnið í Canvas eða öðru námsumsjónarkerfi þá verður til aðgangur fyrir þá á vefsvæði Turnitin.com, sem tengist við netfang þeirra.

Kennarar geta því skráð sig inn á Turnitin.com (verða að búa til lykilorð í fyrsta skipti sem þeir fara inn) og geta breytt dagsetningum þar, veitt endurgjöf og nýtt sér fleiri eiginleika Feedback Studio.

Kennarar geta einnig kosið að nota  Turnitin.com fyrir skilaverkefni nemenda. Admin skólans getur búið til aðgang fyrir viðkomandi kennara.

Það er einnig hægt að nota eins og alltaf vefsvæði Turnitin.com. Þeir kennarar sem nota Uglu nýta sér vefsvæði Turnitin.