Saga Turnitin Feedback Studio á Íslandi

Notkun forritsins


Háskólar á Íslandi hófu samstarf árið 2012 varðandi innleiðingu á notkun Turnitin í skólunum og þá aðallega í formi ritstuldarvarna. Sigurður Jónsson hjá Háskóla Íslands leiddi samstarfið til desember 2016.

Frá desember 2016 til maí 2018 sá Hjalti R. Benediktsson umsjónarmaður kennslukerfa hjá Háskólanum á Bifröst um Turnitin fyrir háskólana.

Í mars 2017 gerði Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn (LBS-HSB), fyrir hönd mennta- og menningarmálaráðuneytisins, samning við Turnitin um landsaðgang Íslands að kerfinu í þrjú ár. Í tilefni af því kom Koos Kruithof frá Turnitin í Hollandi til landsins, fundaði með forsvarsmönnum og bauð upp á kynningu á kerfinu fyrir fulltrúa frá háskólunum og framhaldsskólunum.

Hilma Gunnarsdóttir (hilma [hja] landsbokasafn.is) bókasafns- og upplýsingafræðingur hjá LBS-HSB hefur tekið að sér að leiða samstarf Turnitin á Íslandi. Kerfisstjórn með Turnitin-Ísland aðganginum hefur Sigurbjörg Jóhannesdóttir (sibba [hja] hi.is) kennslufræðingur háskólakennslu hjá Kennslumiðstöð – Kennslusviði Háskóla Íslands.

Sjá vefsíðu LBS-HSB um Turnitin á Íslandi

Í Turnitin-Íslands samstarfinu eru allir íslensku háskólarnir og meirihluti íslensku framhaldsskólanna, auk eins grunnskóla og eins  skóla utan formlega menntakerfisins. Allir íslensku háskólarnir eru virkir í notkun á Turnitin frá byrjun árs 2012. Nokkrir framhaldsskólar og einn grunnskóli hafa nýtt sér kerfið í gegnum séraðgang en í apríl 2018 þá fluttust þeir aðgangar inn í landsaðgang Íslands að Turnitin. Nokkrir framhaldsskólar byrjuðu að nota kerfið vorið 2018 en flestir áætla að byrja að nota það haustið 2018.

Í apríl 2018 eru sjö háskólar aðilar að Turnitin – Íslands landsaðganginum, 37 framhaldsskólar (ekki allir virkir), einn grunnskóli og einn sérskóli á framhaldsskóla- og háskólastigi.

Á mynd 1 má sjá fjölda skila inn í kerfi Turnitin frá byrjun árs 2012 hjá íslensku háskólunum.

Mynd 1. Súlurit sem sýnir fjölda verkefna sem nemendur í íslensku háskólunum hafa skilað á árunum 2012 til 2017.

2012


  • Háskóli Íslands

    janúar 2012 hi.is

  • Háskólinn á Akureyri

    mars 2012

  • Háskólinn á Hólum

    mars 2012

  • Háskólinn í Reykjavík

    apríl 2012

  • Háskólinn á Bifröst

    maí 2012

  • Verzlunarskóli Íslands

    október 2012


2013


  • Landbúnaðarháskóli Íslands

    febrúar 2013

  • Listaháskóli Íslands

    nóvember 2013


2014


  • Hólabrekkuskóli

    apríl 2014

  • Menntaskólinn að Laugarvatni

    nóvember 2014


2016


  • Fjölbrautaskólinn í Garðabæ

    september 2016


2017


  • Keilir

    nóvember 2017


2018


  • Verkmenntaskólinn á Akureyri

    mars 2018

  • Verkmenntaskóli Austurlands

    mars 2018

  • Menntaskólinn í Reykjavík

    mars 2018

  • Fjölbrautaskóli Suðurnesja

    mars 2018

  • Menntaskólinn á Tröllaskaga

    apríl 2018

  • Fjölbrautaskóli Suðurlands

    apríl 2018

  • Menntaskólinn á Ísafirði

    apríl 2018

  • Menntaskólinn á Akureyri

    apríl 2018

  • Menntaskólinn við Sund

    maí 2018

  • Menntaskólinn við Hamrahlíð

    júní 2018

  • Fjölbrautaskólinn við Ármúla

    júní 2018

  • Kvennaskólinn í Reykjavík

    júlí 2018

  • Menntaskólinn í Kópavogi

    ágúst 2018

  • Flensborgarskólinn í Hafnarfirði

    ágúst 2018

  • Fjölbrautaskólinn í Breiðholti

    ágúst 2018

  • Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum

    ágúst 2018

  • Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ

    ágúst 2018

  • Fjölbrautaskóli Snæfellinga

    ágúst 2018

  • Borgarholtsskóli

    ágúst 2018

  • Fjölbrautaskóli Vesturlands

    september 2018

  • Framhaldsskólinn á Laugum

    september 2018

  • Tækniskólinn

    september 2018

  • Menntaskóli Borgarfjarðar

    október 2018

  • Háskólasetrið á Vestfjörðum

    október 2018

  • Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum

    október 2018