Saga Turnitin Feedback Studio á Íslandi
Notkun forritsins
Háskólar á Íslandi hófu samstarf árið 2012 varðandi innleiðingu á notkun Turnitin í skólunum og þá aðallega í formi ritstuldarvarna. Sigurður Jónsson hjá Háskóla Íslands leiddi samstarfið til desember 2016.
Frá desember 2016 til maí 2018 sá Hjalti R. Benediktsson umsjónarmaður kennslukerfa hjá Háskólanum á Bifröst um Turnitin fyrir háskólana.
Í mars 2017 gerði Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn (LBS-HSB), fyrir hönd mennta- og menningarmálaráðuneytisins, samning við Turnitin um landsaðgang Íslands að kerfinu í þrjú ár. Í tilefni af því kom Koos Kruithof frá Turnitin í Hollandi til landsins, fundaði með forsvarsmönnum og bauð upp á kynningu á kerfinu fyrir fulltrúa frá háskólunum og framhaldsskólunum.
Hilma Gunnarsdóttir (hilma [hja] landsbokasafn.is) bókasafns- og upplýsingafræðingur hjá LBS-HSB hefur tekið að sér að leiða samstarf Turnitin á Íslandi. Kerfisstjórn með Turnitin-Ísland aðganginum hefur Sigurbjörg Jóhannesdóttir (sibba [hja] hi.is) kennslufræðingur háskólakennslu hjá Kennslumiðstöð – Kennslusviði Háskóla Íslands.
Sjá vefsíðu LBS-HSB um Turnitin á Íslandi
Í Turnitin-Íslands samstarfinu eru allir íslensku háskólarnir og meirihluti íslensku framhaldsskólanna, auk eins grunnskóla og eins skóla utan formlega menntakerfisins. Allir íslensku háskólarnir eru virkir í notkun á Turnitin frá byrjun árs 2012. Nokkrir framhaldsskólar og einn grunnskóli hafa nýtt sér kerfið í gegnum séraðgang en í apríl 2018 þá fluttust þeir aðgangar inn í landsaðgang Íslands að Turnitin. Nokkrir framhaldsskólar byrjuðu að nota kerfið vorið 2018 en flestir áætla að byrja að nota það haustið 2018.
Í apríl 2018 eru sjö háskólar aðilar að Turnitin – Íslands landsaðganginum, 37 framhaldsskólar (ekki allir virkir), einn grunnskóli og einn sérskóli á framhaldsskóla- og háskólastigi.
Á mynd 1 má sjá fjölda skila inn í kerfi Turnitin frá byrjun árs 2012 hjá íslensku háskólunum.
Mynd 1. Súlurit sem sýnir fjölda verkefna sem nemendur í íslensku háskólunum hafa skilað á árunum 2012 til 2017.
2012
Háskóli Íslands
janúar 2012 hi.is
Háskólinn á Akureyri
mars 2012
Háskólinn á Hólum
mars 2012
Háskólinn í Reykjavík
apríl 2012
Háskólinn á Bifröst
maí 2012
Verzlunarskóli Íslands
október 2012
2013
Landbúnaðarháskóli Íslands
febrúar 2013
Listaháskóli Íslands
nóvember 2013
2014
Hólabrekkuskóli
apríl 2014
Menntaskólinn að Laugarvatni
nóvember 2014
2016
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
september 2016
2017
Keilir
nóvember 2017
2018
Verkmenntaskólinn á Akureyri
mars 2018
Verkmenntaskóli Austurlands
mars 2018
Menntaskólinn í Reykjavík
mars 2018
Fjölbrautaskóli Suðurnesja
mars 2018
Menntaskólinn á Tröllaskaga
apríl 2018
Fjölbrautaskóli Suðurlands
apríl 2018
Menntaskólinn á Ísafirði
apríl 2018
Menntaskólinn á Akureyri
apríl 2018
Menntaskólinn við Sund
maí 2018
Menntaskólinn við Hamrahlíð
júní 2018
Fjölbrautaskólinn við Ármúla
júní 2018
Kvennaskólinn í Reykjavík
júlí 2018
Menntaskólinn í Kópavogi
ágúst 2018
Flensborgarskólinn í Hafnarfirði
ágúst 2018
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
ágúst 2018
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum
ágúst 2018
Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ
ágúst 2018
Fjölbrautaskóli Snæfellinga
ágúst 2018
Borgarholtsskóli
ágúst 2018
Fjölbrautaskóli Vesturlands
september 2018
Framhaldsskólinn á Laugum
september 2018
Tækniskólinn
september 2018
Menntaskóli Borgarfjarðar
október 2018
Háskólasetrið á Vestfjörðum
október 2018
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum
október 2018